Kristín Björg Viggósdóttir

Iðjuþjálfi

Foreldra- og uppeldisfræðingur

Dans- og hreyfimeðferðarfræðingur

Senda Kristínu tölvupóst

  • Kristín sinnir börnum og fullorðnum með sálfélagslegan vanda. Kristín hefur sérstakan áhuga á tengslum milli foreldris og barns og áhrif þess á líðan og taugakerfið. Kristín hefur unnið bæði með einstaklingum og foreldrum og börnum saman.

    Kristín hefur mikinn áhuga tengslunum milli líkamlegrar og andlegrar líðan.

  • Tengsla og áfallamiðuð nálgun. Við skoðum hvernig áföll og streita hafa áhrif á daglegar athafnir og mynstur. 

    Ráðgjöfin og stuðningurinn getur falist í samtali og hagnýtum æfingum; hreyfingum, slökun, skynjöfnunar æfingum ásamt því að kafa dýpra í atvik eða mynstur í samskiptum við aðra. Einnig skoðum við hvernig aðlaga má umhverfið og nota bjargráð til að einstaklingar geti stundað þá iðju sem gefa lífi þeirra gildi.

  • Kristín Björg er foreldra- og uppeldisfræðingur, iðjuþjálfi, jógakennari og með MA í dans- og hreyfimeðferð (e. Dance Movement therapy).  Einnig er Kristín er þriggja barna móðir sem henni finnst meiri lærdómur en nokkur háskólagráða. Helstu áhugasvið Kristínar eru virðing og tengsl í uppeldi, skynúrvinnslu kenningar (e. sensory integration) og allt sem viðkemur vinnu með líkamann. 


    Kristín getur ýmist boðið upp á iðjuþjálfun, foreldra- og uppeldisráðgjöf eða listmeðferð í formi dans- og hreyfimeðferðar eða almennan tíma þar sem öll sérþekkingin vinnur vel saman.


    Iðjuþjálfun:

    Aðstoðar fólk í að ná aftur færni til að sinna daglegum athöfnum eftir áföll eða veikindi. Færnin getur falist í því að styrkja taugakerfið og auka meðvitundum eigin viðbrögð og þarfir. Valdeflandi leiðir eru nýttar til að einstaklingur geti fundið betra jafnvægi í daglegu lífi og ná að komast yfir verkefni sem eru einstaklingnum mikilvæg. 


    Foreldra- og uppeldisráðgjöf

    Viðtalstímar og ígrundun um samskipta mynstur milli foreldris og barns. Foreldrið er leitt í gegnum ferli til að skoða eigin viðbrögð við hegðun barnsins. Í sameiningu finnum við leiðir sem geta styrkt samskiptin og tengslin. Ígrundunin getur líka falist í því að skoða hvað hefur mótað þig sem foreldri og hvað úr þinni æsku fylgir þér inn foreldrahlutverkið. 

    Listmeðferð - Dans- og hreyfimeðferð

    Dansi- og hreyfimeðferð er ein tegund listmeðferðar. Hún byggir í grunninn á tengslakenningum (e. Attachment theory) en í gegnum margs konar hreyfingar er unnið með tengsl við aðra, speglun, viðbrögð, augnsamband og nánd. Mikil úrvinnsla á sér stað í líkamanum og margt kemur upp á yfirborðið í hreyfingum sem ekki kemur endilega fram í töluðu máli. Í Dans- og hreyfimeðferð er unnið að því að gera hið ómeðvitaða meira meðvitað og að þekkja eigin viðbrögð.

    2003 BSc í Iðjuþjálfun frá HA

    2011 MA í Dance Movement Therapy

    2013 Yoga instructor training VYASA Singapore 

    2021 Diplóma (60e) í Foreldra og uppeldisfræði HÍ

    Endurmenntun:

    2006-2007 Dance Movement Therapist Foundation Goldsmith University

    2007 CBT training Hertfordshire partnership trust

    2012 Sensory Integration workshop, Winnie Dunn. Leiden University Netherlands

    2015 Special baby and toddler and swimming instructer, Birthlight Singapore

    2017  Respectful Discipline Teacher training EIPIC CENTER Singapore 2024  2024 Börn og andleg heilsa námskeið, SLF

    2025 Tengjumst í leik foreldranámskeið, leiðbeinendanámskeið. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu


  • Starfsreynsla

    Kritín hefur breiða reynslu af mismunandi vettvangi. Hún hefur starfað bæði með fullorðnum einstaklingum á geðsviði og með börnum með sértækar þarfir. Kristín hefur starfað í Bretlandi, Hollandi  og Singapúr sem hefur gefið henni góða innsýn inn í mismunandi hefðir og viðhorf.

    2023 - í dag     Tengslasetur/Grænahlíð. Iðjuþjálfun, foreldra- og uppeldisráðgjöf og dans- og hreyfimeðferð. 

    2017 - í dag     Eigin rekstur

    2017 - 2019     Jóga kennsla í Kramhúsinu.

    2015 - 2017     THK Moral Society, Early Intervention Centre for children, Singapore. Iðjuþjálfi og Dance Movement Therapist. Hópatímar og ráðgjöf með áherslu á skynúrvinnslu og þroska.

    2013 - 2017    Sjálfstætt starfandi jógakennari í Singapúr

    2011-  2012    Child Development Clinic, Amsterdam. Iðjuþjálfi og Dance Movement Therapist. Mat, einstaklingsvinna með mikla áherslu á skynúrvinnslu og hreyfingu.

    2006 - 2008    OT Department, MHU, QEII Hospital, Welwyn Garden City, Hertfordshire Partnership NHS Trust. Iðjuþjálfun; hópastarf, mat og heimaþjónusta

    2005 - 2006     OT Department, MHU, Basildon Hospital, South Essex Partnership NHS Trust. Hópastarf, fræðsla, mat.

    2003 -  2004     Klúbburinn Geysir, úrræði fyrir fólk með geðrænan vanda