Harpa Katrín Gísladóttir sálfræðingur hjá Grænuhlíð fjölskyldumiðstöð

Harpa Katrín Gísladóttir

  • Harpa Katrín sinnir sálfræðimeðferð fyrir fullorðna og ungmenni frá 18 ára aldri. Auk þess býður hún uppá hjóna-og pararáðgjöf.

    Áföll og áfallastreita

    Depurð og þunglyndi

    Kvíði

    Sjálfsmatsvandi

    Samskiptavandi

    Tilfinningavandi

    Vandamál í tengslum við ýmis konar fíknir og erfiðleikar sem fylgja því að vera aðstandandi

    Meðvirkni

    Sálrænir erfiðleikar og vandamál sem geta tengst breytingaskeiði kvenna

  • Harpa Katrín sinnir einstaklingsmeðferð og veitir hjóna-og pararáðgjöf fyrir fólk af öllum kynjum. Hún vinnur mest með fullorðnu fólki og leggur áherslu á sannreyndar meðferðarleiðir. Aðferðirnar sem Harpa Katrín beitir í meðferð eru hugræn atferlismeðferð og ACT (Acceptance and Commitment Therapy) en í þeirri síðarnefndu er áhersla á að auka virkni í samræmi við persónuleg gildi. Harpa vinnur einnig með EMDR (Eye Movement Decensitiation Reprocessing) auk þess sem núvitund getur verið hluti meðferðar. Meðferð er ávallt sniðin að þeim vanda sem ætlunin er að vinna með.

    EMDR

    HAM

    ACT

  • Harpa Katrín lauk B.A. prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og kandídatsprófi frá sama skóla árið 2013.

    Yoga kennaranám, level 1 (200 klst). Hjá Yoga Shala, Reykjavík. Júní 2022

    IFS Online Circle: Foundations of the IFS model. Dr. Richard Schwartz, Toni Herbine-Blank, MS, RN, C-SP, & Pamela Krause, MSW, LCSW. apríl-október 2021

    Yoga nidra kennaranám. Matsyendra Saraswati hjá Yogavin. Nóvember 2018

    Samkenndarmiðuð meðferð (Compassion Focused Therapy): Vinnustofa hjá Dr. Russell Colts, janúar 2018

    Art of EMDR, with special focus on EMDR with complex trauma. Roger Solomon, Ph.D. ágúst-september 2017

    ACT and mindfulness for trauma. 8 vikna netnámskeið hjá Dr. Russ Harris. Mars-maí, 2016

    Unnið með parta: Námskeið í að auka stöðugleika og auðvelda úrvinnslu hjá skjólstæðingum með mikla áfallasögu. Gyða Eyjólfsdóttir og Margrét Blöndal. Reykjavík, apríl 2016

    FSAP (Feeling State Addiction Protocol) EMDR við fíkn. Robert Miller. Reykjavík, júlí 2015

    Fræðslunámskeið í EFT (Emotion Focused Couples Therapy). Þórdís Rúnarsdóttir. Reykjavík, febrúar-maí 2015

    Unnið með flókin áföll og hugrof í EMDR. Kathleen Mrtin, LCSW. Reykjavík, apríl 2015

    Núvitundarnámskeið. Helena Bragadóttir og Gunnar Friðriksson. Reykjavík, janúar-mars 2015

    EMDR level II. Roger Solomon, Ph.D. september 2014

    EMDR level I. Roger Solomon, Ph.D. febrúar 2014

  • Harpa Katrín hefur sinnt meðferðarstarfi á Geðdeild Landsspítalans, hjá Sálfræðingum Höfðabakka, Heilsustofnun NLFÍ og Sálfræðiráðgjöfinni áður en hún hóf stöf hjá Grænuhlíð.

    Hún hefur haldið ýmis námskeið, til dæmis:

    „Að sleppa tökunum á kvíða og lifa lífinu lifandi -ACT hópmeðferð“ 8 vikna hópmeðferð ásamt Haldóru Björk Bergmann sálfræðingi (2015)

    „Betri líðan, aukin lífsgæði: Lífsorðin 14“ 6 vikna hópnámskeið unnið í samvinnu við Héðinn Unnsteinsson höfund bókarinnar Vertu úlfur -wargus esto (2016)

    Harpa Katrín er meðlimur í Sálfræðingafélagi Íslands og Félagi Sjálfstætt starfandi Sálfræðinga. Hún starfar eftir siðareglum Sálfræðingafélags Íslands